Góðan
daginn
Ég (Dóra),
Snædís, Ella og Einar skelltum okkur til Barcelona um helgina
og váááá ég er ekki frá því að þetta hafi verið ein af, ef
ekki bara skemmtilegasta helgin mín á
Spáni..!
Barcelona er
GEÐVEIK borg!! (ég ætla samt að vara fólk við, þetta er langt
blogg )
Ferðin byrjaði á laugardagsmorguninn, við lögðum af
stað kl 7 um morguninn!! Ég og Snædís vorum mjög duglegar að hjálpa
til við að rata, Ella vakti okkur sem sagt rétt áður en við komum
til Barcelona haha en við byrjuðum á
því að rúnta um borgina og skoða hana og tókum myndir út um gluggan
eins og alvöru túristar og leituðum að hóteli. Svo fórum við og
skoðuðum risastórt listasafn sem var alveg ógeðslega flott, það var
yfir allri borginni
Svo vorum
ég og Snædís orðnar svo þreyttar á að sitja í bílnum þannig að við
fengum að fara að kíkja í búðir á meðan Ella og Einar héldu áfram
að leita að hóteli.. Við kíktum í
“nokkrar” búðir og fengum okkur Starbucks kaffi og vorum alveg að
tryllast í þessari stórborg. Ég hef aldrei séð svona mikið af fólki
á einum stað, það var varla pláss fyrir mann á
götunum
En svo
fórum við og hittum Ellu og Einar á hard rock og fengum okkur
hamborgara a la Spánn (sem sagt þurrir með engri sósu haha)
Svo ákváðum við að keyra bara á
Hotel PortAventura (sem er hótelið við stærsta skemmtigarðinn á
Spáni), geðveikt fínt hótel, 4 stjörnu með 2 sundlaugum og allt..
keyrðum þangað og fengum herbergi, með 2 hjúts
hjónarúmum
Vöknuðum á sunnudagsmorgun og fórum á
morgunverðarhlaðborðið og þar gat maður valið um gjörsamlega allt
sem maður vildi.. keyrðum svo niður í Barcelona og ætluðum að kaupa
miða á Barcelona leik (Barcelona-Sevilla) á New Camp.. Það tók
aðeins lengri tíma en við héldum og við þurftum að standa í röð í
örugglega 5 tíma eða e-ð.. en við erum svo miklar fótboltabullur að
það stoppaði okkur ekki haha Það var
uppselt á leikinn og við fengum ekki einu sinni sæti öll saman, ég
og Snædís sátum saman og Ella og Einar hinum megin á vellinum.. svo
fórum ég og Snædís að rölta um bæinn á meðan við biðum eftir
leiknum og sáum fullt af fólki standa fyrir utan eitthvað hótel og
við spurðum hvað væri í gangi og þá var þetta hótelið sem Barcelona
liðið gistir á og ég og Snædís, fótboltabullurnar, náðum okkur góðu
stæði fremst og sáum allt liðið labba úr hótelinu og inn í rútu,
beint við hliðiná okkur!! Ég náði að taka vídjó af öllu liðinu, en
thví midur tók ég engar myndir
Vid sáum Eið Smára, Ronaldinho,
Merci, Oscar (og svo veit ég ekki hvað fleiri heita hahaha)
En þetta var geeeðveikt! Svo
ákváðum ég og Snædís að hoppa upp í strætó og fara niður í miðbæ..
Svo fór strætóinn ekkert niður í miðbæ og við týndumst og enduðum
með því að rúnta í strætó í hálftíma og vorum komin á endann á
borginni og þá vorum við reknar útúr strætónum!!! Ég vissi ekki að
það væri hægt hahahah
Strætóbílstjórinn sagði að við værum búnar að vera alltof lengi í
strætónum hahaha, þannig að við hringdum í Ellu og Einar og báðum
þau að sækja okkur og korter þangað til leikurinn byrjaði! Þau
fundu okkur fyrir rest en við villtumst og komum alltof seint á
leikinn
En vááááá hvað New Camp er stórt! Váááá.. þetta var
geeeðveikt! ég veit ekkert um fótbolta en þetta var ekkert smá
gaman og við unnum (3-1).. svo
löbbuðum við að reyna að leita að Einari og Ellu, sem var ekkert
auðvelt því það var svo mikið af fólki, þannig að ég og Snædís
fórum bara að ljúga að fullt af fólki að Eiður Smári væri vinur
okkar og hann hefði boðið okkur á leikinn og eitthvað hahaha, þá
vildu sko allir tala við okkur
En svo fórum við að skoða kirkjuna
sem er GEÐVEIK.. Hún er svo alltof flott! Ég og Snædís ætlum sko að
gifta okkur þarna!!
Á mánudagsmorgun vöknuðum við og
fórum í morgunverðarhlaðborðið og fórum svo í PortAventura sem er
stærsti skemmtigarðurinn á Spáni.. Við vorum algjörir lúðar í gulum
regnslám útaf því að það var rigning.. En váááá hvað þetta er
flottur garður, og svo var ennþá flottara af því að það er
Halloween vika í næstu viku og það var allt skreytt og geðveikt
flott..
Við fórum í 8 hringja rússíbanann
sem er skemmtilegasti rússíbani sem ég hef farið
í!
Við fórum í draugahús sem er
ógeðslegasta draugahús sem ég hef farið
í!!
Við fórum
í klessubíla, víkingaskip, kolkrabbann, 10 rússíbana, tebollana og
endalaust fleiri tæki..
En ég verð
að segja að ég er ekkert smá stolt af Einari, þetta er í fyrsta
skiptið sem hann fer í tívolí og hann fór í flest tækin af okkur og
hann fór meira að segja í fallturninn sem er 100 m hár (hærri en
staurinn í Köben og var kosinn “the best thriller in something
2005) En svo var garðurinn að loka og við ekki sátt við að
vera að fara heim.. Mig langar bara að vera í Barcelona Það er svo
margt sem við náðum ekki að skoða, við náðum t.d. ekki að fara í
munkaklaustrið, picasso safnið, Gaudi safnið, geðveika mollið og
marg margt margt fleira..
En váá
lengsta blogg sem ég hef skrifað örugglega Ég er mjög stolt af þeim
sem nenntu að lesa það
En mér
finnst svo geðveikt leiðinlegt að Tinna og Íris komust ekki með!
Það hefði verið ennþá skemmtilegra ef þær hefðu komist með!! Og svo
er Tinna farin núna til Danska lands að hitta Gúrý og Svenna kjæró!
:’( Tinna við eigum eftir að sakna þín ALLTOF ALLTOF mikið!! Þetta
verður örugglega mjöög skrýtið að hafa ekki Tinnu! En það
verður örugglega geggjað gaman hjá henni, hitta litlu sætu
Ísabellu, og auðvitað Gúrý og Jónas og Svenna sinn og sjoppa og
svona
alls ekki leiðinlegt..
Svo eru komnar inn fullt af myndum

http://public.fotki.com/dora50/
Kv.
Dorthy*